Episodes
Wednesday Aug 09, 2023
Óupplýst: Blair Adams
Wednesday Aug 09, 2023
Wednesday Aug 09, 2023
Þann 4. júlí 1996 byrjaði Blair að haga sér mjög furðulega en það kviknuðu svosem engar viðvörunarbjöllur hjá fjölskyldunni hans strax. Hann reyndi m.a. nokkrum sinnum að fara yfir til Bandaríkjanna frá Kanada en var stoppaður á landamærunum vegna gruns um að hann væri að smygla einhverju þar á milli, en að lokum tókst það og hélt þetta spontant ferðalag hans áfram alla leiðina til Knoxville í Tennesse þar sem hann að lokum fannst látinn eftir nokkuð undarlegt ferðalag.
Wednesday Aug 02, 2023
Manndráp: Shao Tong
Wednesday Aug 02, 2023
Wednesday Aug 02, 2023
Shao Tong var kínversk, aðflutt til Bandaríkjanna og nemandi í Iowa State University með áætlanir um að verða efnaverkfræðingur.
Til Bandaríkjanna fylgdi henni kærasti og var hún með honum í helgarferð þegar hún hvarf sporlaust.
Ekki kom í ljós strax að Shao væri raunverulega horfin fyrr en um tvem vikum seinna en þá fór lögreglan á fullt.
Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland
Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inná
ww.scrubdaddyisland.is
ÁSKRIFT
Wednesday Jul 26, 2023
Manndráp: Bobbie Jo og Annette
Wednesday Jul 26, 2023
Wednesday Jul 26, 2023
Árið 1982 hurfu tvær konur sama dag í Breckenridge í Colarado. Lík annarar þeirra fannst daginn eftir en hitt átti ekki eftir að finnast fyrr en um 6 mánuðum síðar. Það var hlutur sem fannst á vettvangi sem tengdi þær saman og var lögreglan handviss um að þetta væri einn og sami morðinginn. Augu beindust strax að aðila sem stóð Bobbie næst og það var ekki talin vera tilviljun þegar hlutur fannst á morðvettvangi Annette sem tengdist sama aðila. Það er þó ekki allt sem sýnist.
Wednesday Jul 19, 2023
Mannshvarf: Jodi Huisentruit
Wednesday Jul 19, 2023
Wednesday Jul 19, 2023
Jodi Huisentruit var 27 ára farsæl og ofboðslega dugleg kona, sem vann hart að því að komast þangað sem hana langaði í lífinu.
Hún var samviskusöm og mætti ávalt á réttum tíma til vinnu þar til einn daginn að hún mætti alls ekki.
Í ljós kom ljótur raunveruleiki, og flókin atburðarrás tók við.
Enn í dag er ekki vitað hvað varð að Jodi, en nokkrar kenningar eru til staðar og þar á meðal hvort að mál Jodi og mál Michelle Martinko gætu tengst.
Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland
Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inná
ÁSKRIFT
Wednesday Jul 12, 2023
Manndráp: House of Blood morðin
Wednesday Jul 12, 2023
Wednesday Jul 12, 2023
Edith var einstæð móðir að ala upp son sinn John en sökum fjárhagsvandræða þá bjó hún í athvörfum hér og þar. Það var þar sem hún kynntist ástinni á ný, manni að nafni David. Þau ákváðu að taka sig saman í lífinu og reyndu eftir fremsta megni að stofna gott og stöðugt líf fyrir sig, en það gekk ekki alveg eins og ætlað var þar sem Edith fékk 9 mánaða fangelsisdóm. Eftir afplánun ákvað hún að fagna því að vera laus með David og tveimur vinum þeirra en kvöldið fór aldeilis ekki eins og ætlað var.
Wednesday Jul 05, 2023
Mannshvarf: Danny Barter
Wednesday Jul 05, 2023
Wednesday Jul 05, 2023
Danny Barter var fjögurra ára gamall í útilegu með fjölskyldu sinni við Perdido flóann þegar hann hvarf sporlaust.
Grunu vaknaði strax um að hann hafi orðið fyrir krókódílaárás en þegar afar umfangsmiklar aðgerðir sönnuðu að svo væri ekki, þá þurfti aðeins að kafa dýpra.
Í ljós kom að röð fremur grunsamlegra atvika höfðu átt sér stað bara skömmu áður en að Danny hvarf - en gat það varpað ljósi á málið?
Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland
Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt inn á
ÁSKRIFT
Wednesday Jun 28, 2023
Manndráp: Teresita Basa
Wednesday Jun 28, 2023
Wednesday Jun 28, 2023
Teresita var ósköp venjuleg 48 ára kona sem hafði alla sína ævi dreymt um að vinna í tónlistarbransanum. Það hinsvegar gekk ekki eftir og fór hún að vinna á spítala sem henni líkaði vel við. Hún átti enga óvini, öllum líkaði vel við hana og kom það því fólki í opna skjöldu þegar hún fannst látin einn daginn. Lögreglan átti í erfiðleikum með að finna vísbendingar um hvað kom fyrir hana þar til að einn daginn fór vinkona hennar niður á lögreglustöð og sagði þeim frá ótrúlegri sögu, sögu sem flestir voru mjög skeptískir með að trúa þar til sannleikurinn kom svo sannarlega upp á yfirborðið.
Wednesday Jun 21, 2023
Manndráp: Karen Styles
Wednesday Jun 21, 2023
Wednesday Jun 21, 2023
Karen Styles var 22 ára gömul þegar hún ákvað í sakleysi sínu að fara út að hlaupa eins og hún var vön.
Munurinn þennan daginn var sá að vinkona hennar sem fór alltaf með henni, komst ekki.
Karen hvarf þennan dag og átti ekki eftir að finnast fyrr en mánuði síðar, látin og illa farin.
Með góðum vinnubrögðum lögreglu fannst morðingi hennar og var dreginn fyrir dóm og þar dæmdur sekur en þar endaði sagan ekki.
Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland
Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af vörum inn á
ÁSKRIFT
Wednesday Jun 14, 2023
Mannshvarf: Diane Augat
Wednesday Jun 14, 2023
Wednesday Jun 14, 2023
Diane Augat hafði lengi strítt við geðsjúkdóma og ekki alltaf verið tilbúin til að taka lyfin sem til þurfti til að halda niðri einkennum hennar.
Hún hafði misst flest sem henni þótti vænt um í kjölfar veikindanna og ekki skánaði ástandið þegar hún leiddist út í áfengis og fíkniefnaneyslu
Fjölskylda hennar gafst þó aldrei upp á henni og tóku alltaf á móti henni með opnum örmum og hringdu allar aðvörunarbjöllur þegar Diane hafði ekki sést í sólahring árið 1998
Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland
Kóðinn morðskúrinn veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á
ÁSKRIFT
Tuesday Jun 13, 2023
Óupplýst: Kanika Powell
Tuesday Jun 13, 2023
Tuesday Jun 13, 2023
Kanika var búin að koma sér vel fyrir í lífinu og var spennt fyrir komandi tímum. Það var allt þar til að hún byrjaði að fá dularfullar heimsóknir. Eftir fyrstu heimsóknina þá fylgdi önnur, og Kanika var orðin mjög áhyggjufull enda fannst henni eins og hún væri eitthvað skotmark. Þann örlagaríka dag mætti hún heim til sín eftir stúss og á móti henni tóku þessir dularfullu menn sem ætluðu sér aðeins eitt.
Viltu meira efni? Áskrift kostar 990kr.- á mánuði og inniheldur allt eldra efni ásamt 4-5 nýjum þáttum á mánuði:
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: