ÁSKRIFTARLEIÐ
Komdu í áskrift! Yfir 140 aðgengilegir þættir fyrir aðeins 1.390 kr. á mánuði - skoða hér.

2.5M
Downloads
313
Episodes
Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn.
www.pardus.is/mordskurinn
Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn.
www.pardus.is/mordskurinn

Wednesday Jan 20, 2021
Wednesday Jan 20, 2021
Wednesday Jan 20, 2021
Kurt Sova var 17 ára strákur sem hvarf sporlaust úr partýi í heimabæ sínum. Enginn vildi tjá sig um að hafa séð hann þar, né að yfir höfuð hafið verið partý þetta kvöldið. Sex dögum síðar fannst hann látinn, og var dauðinn hans flokkaður sem "óvitað". Ákveðnir hlutir bentu þó á að hann hafi ekki látist af slysaförum, og var fjölskyldan hans handviss um að hann hafi verið myrtur.

Tuesday Jan 19, 2021
Tuesday Jan 19, 2021
Tuesday Jan 19, 2021
Í þessum þætti kynnumst við The Crossbow Cannibal, manni sem hefði strax átt að setja á bak við lás og slá þegar hann var unglingur
Sem krakki átti hann vægast sagt ógeðslega draumóra sem hann síðar framkvæmdi - með siðlausari mönnum sem til eru!
Hvarf þriggja kvenna, sláturhús, lásabogar og samúræj sverð svo eitthvað sé nefnt

Wednesday Jan 13, 2021
Wednesday Jan 13, 2021
Wednesday Jan 13, 2021
Þegar unnusti Ellie-ar kemur að henni látinni á eldhúsgólfi íbúðar þeirra tekur við ein lélegasta lögreglurannsókn sem sögur fara af
Þrátt fyrir fjölda stungursára og borðliggjandi manndrápsmál eru lögregla og rannsakendur ekki á sama máli
Arfaslök vinnubrögð, sálfsvíg, aukaverkanir lyfja, grunsamlegur unnusti og barátta fjölskyldunnar

Wednesday Jan 13, 2021
Wednesday Jan 13, 2021
Wednesday Jan 13, 2021
Unknown 1 - Yara Gambirasio var 13 ára stelpa sem bjó í úthverfi Bergamo á Ítalíu. Daginn einn mætti hún á fimleikaæfingu og hvarf svo sporlaust. Stærsta og víðamesta rannsókn Ítalíu hófst í von um að finna einhver ummerki um hana. DNA sýni, framhjáhald, sögusagnir, næturklúbbur, símahleranir, rangur maður handtekinn - þetta mál tekur okkur í eina ótrulegustu rannsóknarvinnu fyrr og síðar!
TW - um er að ræða dauða 13 ára stúlku og því vörum við ykkur hér með við áður en þið leggið í hlustirnar..

Tuesday Jan 12, 2021
Tuesday Jan 12, 2021
Tuesday Jan 12, 2021
Við skoðum mál Mauru Murray sem hvarf nánast sporlaust eftir að hafa lent í óhappi á fjallavegi í New Hampshire í Bandaríkjunum
Hvað kom fyrir, hvað gekk á dagana á undan og hvað ætlaði hún sér?
Við förum yfir málið, pælum í kenningum og hendum okkar eigin fram!

Thursday Jan 07, 2021
Thursday Jan 07, 2021
Thursday Jan 07, 2021
Þegar 19 ára nemi finnst myrt á hrottalegann hátt heima hjá vinkonu sinni eftir kvöld á klúbbnum, þá vakna upp ákveðnar spurningar. Morðvopn, hótanir, neyðarlínusímtal, pocked dial upptaka úr símanum hennar, DNA, takeaway poki með skilaboðum! Maður myndi halda að það væri allt til staðar til þess að leysa málið og gefa Faith réttlætið sem hún á skilið, en það reynist þó ekki svo auðvelt..
Við erum á facebook og instagram: Morðskúrinn!

Saturday Dec 26, 2020
Saturday Dec 26, 2020
Saturday Dec 26, 2020
Í síðasta aukaþætti mánaðarins tökum við fyrir mál Corrie McKeague sem að týndist í september árið 2016.
Afdrif hans eru enn óljós og eftir að hafa skoðað málið sitjum við með fleiri spurningar en svör.
Við þökkum enn og aftur fyrir hlustanirnar síðustu mánuði og viðbrögðin og óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!
Við sjáumst hress í janúar!

Tuesday Dec 22, 2020
Tuesday Dec 22, 2020
Tuesday Dec 22, 2020
Í þessum þætti verður sérstakt jólaþema þar sem bæði málin gerast í desember! Við byrjum á því að fjalla um Los Feliz Murder Mansion, en eftir að hræðilegt morð átti sér stað þar, stóð húsið ósnert með jólaskreytingum í mörg mörg ár.
Seinna málið sem við fjöllum um er JonBenét Ramsey, 6 ára fegurðardrottningin sem fannst látin á heimili sínu á jóladag. Mannránsbréf, brotinn gluggi, DNA, í raun böns af sönnunargögnum en ekkert sem að bendir á sekann aðila og þar með er málið enn í dag óleyst.
Þetta er næstsíðasti þátturinn okkar í desember, en næsti þáttur kemur út á laugardaginn! Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár - og munið að koma og henda ykkur yfir á samfélagsmiðlana okkar til að lesa eitthvað gúrme dæmi á meðan jólafríinu stendur!

Saturday Dec 19, 2020
Saturday Dec 19, 2020
Saturday Dec 19, 2020
Þriðji aukaþáttur desember mánaðar!
Þórdís fer með okkur alla leið til Alberkjúrkjú og segir okkur frá dularfullu hvarfi Töru Calico en hún hvarf eftir hjólatúr í nágrenni við heimabæ sinn.
Málið varð kalt alltof alltof snöggt og vinnubrögðin eftir því.
Kenningarnar eru nokkrar þar á meðal The Toy Box Killer og jafnvel spilltar lögreglur
Við erum eins og alltaf á instagram og facebook og hvetjum ykkur eindregið að koma þangað og spjalla um allt morð og glæpatengt!
https://www.facebook.com/mordskurinn/
https://www.facebook.com/groups/mordskurinn
https://www.instagram.com/mordskurinn/

Wednesday Dec 16, 2020
Wednesday Dec 16, 2020
Wednesday Dec 16, 2020
Í þessum níunda þætti byrjum við á að fara yfir mál Michele Avila, 17 ára stúlku sem fannst látin í skóglendi í Los Angeles. Það var ekki fyrr en fimm árum síðar sem morðingjarnir hennar voru handteknir og leiddir fyrir dóm, en mesta undrunin var sú hverjir þeir væru í raun og veru. Myndin A Killer Among Us er byggð á málinu hennar Missyar.
Seinna málið fjallar um Andrew Sadek, 20 ára, sem sást síðast yfirgefa heimavistina þar sem hann bjó með silufrlitaða tösku á bakinu. Hann hafði verið uppljóstrari fyrir lögregluna og er enn óvíst um hvort það tengdist afdrifum hans.
Við erum á instagram og facebook - komið og verið með okkur þar!
Komdu í áskrift! Yfir 140 aðgengilegir þættir fyrir aðeins 1.390 kr. á mánuði - skoða hér.