ÁSKRIFTARLEIÐ
Komdu í áskrift! Yfir 140 aðgengilegir þættir fyrir aðeins 1.390 kr. á mánuði - skoða hér.
Wednesday Mar 06, 2024
Wednesday Mar 06, 2024
Wednesday Mar 06, 2024
Brandon var að ljúka fyrsta árinu sínu í skóla og mætti í nokkur partý kvöldið 14. maí árið 2008. Hann var á bíl og entist því ekki lengi, en í kringum miðnætti yfirgefur hann síðustu veisluna. Tæpum tveimur tímum síðar hringir hann í foreldra sína og segir þeim frá því að hann hafi endað ofan í skurði og sé fastur, staðsettur í Lynd. Hann talar við foreldra sína í símann á meðan hann bíður en upp renna tvær grímur á þau þegar þau finna hann hvergi. Hann ákveður að fara út úr bílnum til að ganga í áttina að næsta bæjarfélagi og á miðri leið heyra foreldrar hans hann segja OH SHIT og var það í síðasta skipti sem þau hafa heyrt frá honum. Við leit kom í ljós að hann var hvergi nærri Lynd heldur á allt öðrum stað og margar spurningar hafa vaknað í kjölfar hvarfs hans.
Þátturinn er í boði Define the Line - þið getið skoðað úrvalið inni á www.definethelinesport.com
Komið í áskrift:
Samfélagsmiðlar:
Wednesday Feb 28, 2024
Wednesday Feb 28, 2024
Wednesday Feb 28, 2024
Shaye var ung einstæð móðir, með mörg áhugamál, flest þó áhugamál sem aðrir höfðu lítinn áhuga á.
Hún kynntist þó Frankie, en hann deildi áhugasviði með Shaye á sumum sviðum - þó alls ekki á öllum.
Áhugi Shaye á sakamálum, raðmorðingjum og morðingjum almennt var mjög mikill svo mikill að sumir halda að það hafi hvatt hana til að fremja svæsinn glæp.
Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift!
Wednesday Feb 21, 2024
Wednesday Feb 21, 2024
Wednesday Feb 21, 2024
Shannan Gilbert hvarf frá Oak Beach en leit að henni leiddi í ljós 11 líkamsleifar sem fundust á strandlengjunni á Long Island. Ljóst var að um raðmorðingja var að ræða og eftir ótal langa rannsóknarvinnu er loksins búið að ákæra fyrir fjögur fórnarlömb.
Wednesday Feb 14, 2024
Wednesday Feb 14, 2024
Wednesday Feb 14, 2024
Kaylee Sawyer var 23 ára gömul árið 2016, í sambandi með ástinni í lífi sínum, með drauma um að verða tannlæknir og hefði átt að eiga allt lífið framundan.
Það var því miður ekki svo, en eftir stórskemmtilegt kvöld á djamminu með vinkonum sínum kom kærastinn hennar að sækja hana.
Kaylee endaði á að rífast við kærasta sinn þetta kvöld, og labba í burtu með þeim tilgangi að kæla sig aðeins niður. Það átti þó eftir að vera það síðasta sem hún gerði, hún sást aldrei aftur á lífi.
Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift!
ÁSKRIFT
Tuesday Feb 06, 2024
Tuesday Feb 06, 2024
Tuesday Feb 06, 2024
Lauren fór með vinum sínum í helgarferð á wakeboard festival en helgin fór ekki eins og áætlað var því þegar vinir hennar vöknuðu um morguninn þá var hún hvergi sjáanleg. Þau gerðu ráð fyrir því að hún hefði bara farið að hitta einhvern vin en komust fljótt að því hvað hafði komið fyrir hana.
Áskrift kostar 990kr.- á mánuði:
- 4-5 þættir á mánuði
- Aðgangur að öllum áskriftarþáttum frá upphafi (100+ þættir)
Skráðu þig hér:
Wednesday Jan 31, 2024
Wednesday Jan 31, 2024
Wednesday Jan 31, 2024
Miya Marcano hafði ákveðið að búa á aðeins fínni háskólagörðum, í fínna og að hún taldi öruggara umhverfi á meðan námi hennar stóð. Hún ætlaði sér að verða sjúkraliði enda með íþróttadellu og mikla ástríðu fyrir að hjálpa fólki.
Miya fékk þó aldrei tækifæri til að klára námið sitt, og hún var ekki eins örugg eins og hún hélt, ekki einu sinni inn á sínu eigin heimili.
En það var einmitt þaðan sem hún hvarf einn september eftirmiðdag og átti aldrei aftur eftir að sjást á lífi.
Langar þig í fleiri þætti? Komdu í áskrift þar sem 120+ þættir bíða þín!
ÁSKRIFT
Tuesday Jan 23, 2024
Tuesday Jan 23, 2024
Tuesday Jan 23, 2024
Ellie Nesler var ein sú besta móðir sem fyrirfinnst í Jamestown og þegar hún komst að því sem sonur hennar hefði gengið í gegnum þá tók hún málin í sínar hendur.
Þátturinn er í boði PLAY! en það er 20% afsláttur út 26. janúar í tilefni af bóndadeginum.
Wednesday Jan 17, 2024
Wednesday Jan 17, 2024
Wednesday Jan 17, 2024
Kim var móðir, eiginkona, starfandi hjúkrunarfræðingur og vel liðin kona í sínu samfélagi.
Það var alveg þar til að kom í ljós að hún var ofbeldisfull móðir og eiginkona og orðsporið hvarf hratt.
Fólk hefur trúlegast haldið að hún kæmist ekki mikið lægra í lífinu þar til að skyndilega var hún handtekin fyrir að eitra fyrir sjúklingum, ekki bara einum heldur mörgum.
Þátturinn er í boði Play
Bókið sumarferðina sem allra fyrst inn á www.flyplay.is
ÁSKRIFT
Wednesday Jan 10, 2024
Wednesday Jan 10, 2024
Wednesday Jan 10, 2024
Tracey var 13 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa gengið heim frá vinkonu sinni eitt kvöld. Það liðu ekki margir dagar þar til lík hennar fannst í um 15km fjarlægðar frá heimilinu hennar, og ljóst að einhver hafi rænt henni og drepið hana. Lögreglan var engu nær og biðluðu til almennings um upplýsingar. Það var svo maður sem hringdi inn tveimur árum síðar með upplýsingar um málið, en til að sanna deili á sér þá gaf hann upp vísbendingar sem enginn ætti að vita nema sá sem hafði drepið hana. Hann gaf einnig upp tölurnar 126040 og sagði lögreglu að muna þessar tölur og hingað til hafa komið ótal kenningar um það hvað þessar tölur gætu þýtt.
Þátturinn er í boði PLAY en við minnum á að í dag er síðasti dagurinn til að nýta sér flugfar á 35% afslætti inni á www.flyplay.is
Komdu í áskrift:
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:
@mordskurinn
Wednesday Jan 03, 2024
Wednesday Jan 03, 2024
Wednesday Jan 03, 2024
Shakeylia Anderson var 17 ára gömul harðdugleg stelpa, með drauma um að verða starfandi hjúkurnarfræðingur í Bandaríska hernum.
Hún var með munnin fyrir neðan nefið, hrein og bein og hefði án efa komist langt í lífinu hefði Bo nokkur ekki komið í veg fyrir það.
Þátturinn er í boði:
Fly Play
Skellið ykkur erlendis í sólina, púðrið í Ölpunum eða verslunarferð í Bandaríkjunum!
ÁSKRIFT
Komdu í áskrift! Yfir 140 aðgengilegir þættir fyrir aðeins 1.390 kr. á mánuði - skoða hér.